Gleðilega vinnuhelgi
Ég var að lesa viðtal Skapta Hallgrímssonar við Gerði Óskarsdóttur fræðslufulltrúa Reykjavíkurborgar um kjarasamning kennara og menntamálin.
Hún skiptir sögu grunnskólans sem stofnunar hér á Íslandi í þrjú tímabil:
- Gamla tímann, u.þ.b. 1900-2000. Þar viðhélst hin svokallaða stífa umgjörð menntunar, þ.e. með árgöngum, bekkjum, námi í námsgreinar og deginum í kennslustundir. Kallar það afurð iðnaðarsamfélagsins.
- Mótunartímabilið. Núið, sem er e.k. millibilsástand og því áhyggjuefni margra enda margar stefnur í gangi. Spurning hver verður ofaná... (frh. í 3. tímabili)
- Nýja skólann. Einstaklingsmiðað nám þar sem nemendur vinna sjálfstætt sín verkefni eða í hópum og kennarar vinna saman þverfaglenga og verði aðeins til að leiðbeina nemendum í einstaklings náminu.
Segir hún kjarasamninga enn tilheyra hinu gamla tímabili. Vill hún sjá kennara semja innan BHM, fyrst og fermst um kaup og kjör, vinnutími markast milli 8 og 16 með sveigjanleika í upphafi og lok vinnutímans. Símenntunin ætti að ná að markast innan vinnutímans.
Já, það má segja að margt þarf að breytast til þess að endar nái saman og þar sem þetta einstaklingsmiðaða nám er farið að stíga sín fyrstu skref hérlendis þá er mikil ólga og sveifla innan grunnskólakennslu milli hins gamla og hins nýja.
Fyrir mitt leyti þá eiga börn að byrja 5 ára í skóla. Það er þroskandi fyrir þau að vera og vinna í kringum eldri börn en letjandi fyrir þau að moka sand í kringum óvita allt niður í tveggja ára.
Þá nættu nemendur taka samræmdu prófin ári fyrr og ljúka við menntaskólann á þrem árum, og hefja háskólanám samtímis jafnöldrum sínum í útlöndum.
GAngi ykkur vel að vinna um helgina og vonum að kennaradeilan þreytta leysist og nemendur fái rétt sinn aftur til menntunar.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home