Heilsublogg

Tilgangur síðunnar er að rita ígrundanir mínar og nám um heilsu og menntun

1.21.2006

Til hamingju með afmælið, Anna-San!

There I´ve said it.

Í gærkvöldi fórum við mamma, Finnbogi, Kristján, Kjartan, Kathrin, Siggi og Hanna frænka á frumsýningu myndarinnar:

Memories of a Geisha

Við pöntuðum miðana deginum áður til þess að næla okkur örugglega í sæti á frumsýninguna. Mamma skrapp síðan í Laugarásbíó klukkutíma fyrir sýninguna til þess að sækja miðana. Svo þustum við öll þangað kortéri fyrir til þess að ná góðum sætum. Ég rak mömmu og hina inn í hvelli svo þau næðu góðum sætum á meðan ég biði eftir Hönnu frænku. Fimm mínútum fyrir átta fer ég inn í A sal og viti menn. Nokkrar hræður þarna inni. Fólkið hafði víst meiri áhuga á Jarhead sem b.t.w. er alls ekkert sérstök mynd. Ég sá hana í Boston í Nóvember og meira að segja Kristjáni fannst hún langdregin og leiðinleg.

Memories of a Geisha er hreint út sagt frábær mynd. Ekki einu sinni Kjartani leiddist að horfa á hana.

Ég er að flýta mér á ball. En það er margt japanskt á seyði í kringum mig and I love it, hai.

Kær kveðja,

María

2 Comments:

  • At 4:22 e.h., Blogger Anna said…

    Hvurslags doni er thessi pennustockinvestment. Oskar ther ekki einu sinni til hamingju med ammlid.

    Thad geri eg hins vegar..

    Til hamingju med afmaelid i gaer!

    Fjarknus yfir höf og lönd

    Anna

     
  • At 12:38 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Hæ María mín,
    símanum mínum var stolið áður en ég fór til Hollands og Þýskalands. Er ekki enn komin með nýjan síma, er að fara á morgun til Spánar og þaðan nánast beint til London. Ég sé að það verður ekki tími til að hittast núna í sumar :( Gangi þér vel úti sæta, ég mun fylgjast með á blogginu þínu og vonandi náum við að hittast fljótlega.
    Kær kveðja,
    Hildur ex City
    P.s. e-mailið hjá mér er hildurrh03@ru.is

     

Skrifa ummæli

<< Home